Tove Jansson 1956

Hvað gerðist þá? Sígild Múmínbók kemur aftur

Í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá fæðingu finnsk-sænska rithöfundarins og listamannsins Tove Jansson, skapara Múmínálfanna, endurútgefum við í haust hina sígildu Hvað gerðist þá?

Bókin er þýdd af Böðvari Guðmundssyni og kom síðast út árið 1992. Hvað gerðist þá? er stórglæsilegur prentgripur og mikill happafengur fyrir alla þá fjölmörgu aðdáendur Múmínálfanna!

Tove Jansson fæddist í Helsinki í Finnlandi 9. ágúst 1914 og tilheyrði sænska minnihlutanum þar í landi. Foreldrar hennar voru báðir myndlistarmenn og Tove var ekki nema 14 ára þegar teikning eftir hana birtist fyrst opinberlega í tímaritinu Allas Krönika.

Tove kynnti múmínálfana til sögunnar í stuttri frásögn árið 1945 en fyrsta eiginlega bókin um þessar skemmtilegu furðuskepnur, Það er komin halastjarna, kom út ári síðar. Auk bókanna skrifaði Tove myndasögur um múmínálfana sem birtust í Evening News í London á árunum 1953-1959. Þá tók bróðir hennar, Lars, við verkinu og seinna aðrir listamenn.

Bækurnar um múmínálfana nutu frá fyrstu tíð mikilla vinsælda um allan heim. Þær hafa komið út í 34 löndum og selst í milljónum eintaka. Á Íslandi komu þær fyrst út í þýðingu Steinunnar Briem á árunum 1968-1972. Tove Jansson lést árið 2001 og er af mörgum talin einn rómaðasti rithöfundur Finnlands.

INNskráning

Nýskráning