Í dag gefur Forlagið út bók Nönnu Rögnvaldardóttur, Icelandic Food and Cookery. Bókin gefur sannkallað bragð af Íslandi en í henni er að finna hefðbundnar og nútímalegar íslenskar uppskriftir, yfirlit um sögu matargerðar á Íslandi, matartengdar sagnir og fróðleik.
Bókin hefst á sögulegum inngangi um íslenskan mat og eldamennsku allt frá landnámi til nýja norræna eldhússins. Fjallað er um hefðbundinn íslenskan hátíðamat og matarhefðir tengdar ákveðnum dögum í sérstökum kafla en meginefni bókarinnar er uppskriftir að algengum íslenskum réttum, einskonar ferðalag um íslenskan heimilismat 20. aldar. Flestar uppskriftirnar eru úr fjölskyldu höfundar eða gömlum matreiðslubókum og tímaritum en einnig eru þar vinsælar nýlegar uppskriftir. Hverri uppskrift fylgja upplýsingar um sögu og uppruna réttarins, matartengdar fjölskyldusögur eða annar skemmtilegur fróðleikur sem á einn eða annan hátt setur réttinn í samhengi og vekur upp tilfinningu fyrir íslenskri matseld og menningu og hvernig hún hefur þróast og breyst.
Nanna Rögnvaldardóttir var alin upp í skagfirskri sveit og lærði þjóðlegar matarhefðir af móður sinni. Hún hefur á undanförnum árum sent frá sér hátt á annan tug matreiðslubóka. Icelandic Food and Cookery kom fyrst út í Bandaríkjunum 2002 en hefur lengi verið uppseld og mjög eftirsótt. Þessi útgáfa er mikið breytt og aukin og hefur Nanna bætt við miklu efni um íslenska matarsögu og matarhefðir, auk uppskrifta.