Nýjar bækur í júní

Spánýjar bækur sem bragð er af!

Nú rétt fyrir helgi komu út fjórar fjölbreytta bækur frá Forlaginu. Hér er eitthvað fyrir alla!

Í Bragð af ást hefur Saffron Mackleroy í hálft annað ár tekist á við sorgina og söknuðinn eftir að Joel eiginmaður hennar var myrtur. Enginn veit hver varð honum að bana eða hvers vegna, nema ekkja hans. Og nú er morðinginn farinn að skrifa henni bréf. Til að bæta gráu ofan á svart er fjórtán ára dóttir hennar komin í ógöngur. Á milli þess sem Saffron reynir að höndla veruleikann og vernda fjölskyldu sína leitar hún athvarfs í matargerð sem var líf og yndi Joels. Hún ákveður að ljúka við matreiðslubókina sem hann var að semja og reynir um leið að finna aftur bragðið af ástinni sem þau áttu saman – en ógnin færist sífellt nær. Bragð af ást er hörkuspennandi og tilfinningaþrungin saga um söknuð og ást, leyndarmál og ógnandi óvissu. Koomson hefur verið sérlega vinsæl meðal íslenskra lesenda undanfarin ár og hafa bækur hennar Rósablaðaströndin og Mundu mig, ég man þig slegið rækilega í gegn.

Út er komin síðasta ljóðabók Vésteins Lúðvíkssonar, Kisan Leonardó og önnur ljóð, en hann á umliðnum áratug verið ötull að senda frá sér ljóðabækur sem vakið hafa verðskuldaða athygli, en fyrrum var hann þekktastur fyrir skáldsögur sínar, smásögur og leikrit. Ljóð hans eru blátt áfram en þó ekki einföld, þau fást við mikilsverða reynslu án þess að vera fyrirsegjanleg og þau vegsama fegurðina án þess að vera hátíðleg. Ekkert er of stórt yrkisefni hér eða of smátt, fjarlægt eða nálægt. Hann yrkir um fuglana, sólina og tunglið, mennina, ástina og orðin – hrossaflugu á hraðferð, dansandi land, ropann og auðvitað kisuna Leonardó.

Hugsanabók Guðbergs Bergson geymir 100 léttar hugsanir fyrir allan almenning, eins og segir framan á kápu bókarinnar. Hinn sifrjói Guðbergur nýtur sín vel í þessu umhverfi þar sem hann fjallar um lífið og tilveruna, er ekkert óviðkomandi og hlífir engu og engum, síst sjálfum sér.

nr. 68
Ástarjátning:
Ég veit ekki hvort ég er í þér
eða ég er í mér
eða þú byrjar í þér
en endar í mér.
Eða hefst þú í mér
en endar í þér
eða byrjar þú í þér
og enda í mér?
Er ástin þvílík endemis þvæla?

Síðast en langt því frá síst er Þrautabók Nönnu nornar. Í þessari skemmtilegu þrautabók þarftu að finna kóngulær, komast upp á fljúgandi teppi, teikna heimsins stærstu afmælisköku, lagfæra kafbát með límmiðum og margt margt fleira – en þú gætir líka lent í því að leka niður klístraða froskalöpp eða fara í eltingarleik við eldspúandi dreka. Góða skemmtun! Bókinni fylgja á annað hundrað límmiðar svo þú getur bætt dálitlum Nönnu-galdri við hverja síðu!

Sem sagt, eitthvað við allra hæfi!

INNskráning

Nýskráning