Tveir mætir Forlagshöfundar hlutu í gær Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur, Andri Snær Magnason fyrir Tímakistuna og Þórarinn Eldjárn fyrir þýðingu sína á Veiða vind eftir færeyska rithöfundinn Rakel Helmsdal og Janus á Húsagarði, sem gerði myndirnar. Þetta er í fertugasta og annað skipti sem skólayfirvöld í Reykjavík verðlauna bestu frumsömdu íslensku barnabókina og best þýddu barnabók ársins á undan og engin bókmenntaverðlaun hér á landi eiga sér lengri sögu.
Andri Snær hlýtur nú Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur í fyrsta sinn en Þórarinn Eldjárn hefur fengið þau fjórum sinnum áður, tvívegis fyrir þýðingu og tvisvar fyrir frumsamið verk, í bæði skiptin ásamt Sigrúnu Eldjárn. Yngstu synir, Halldór og Ari Eldjárn, Þórarins veittu verðlaununum móttöku fyrir hans hönd og fluttu hugvekju frá föður sínum.
Tímakistan hlaut í ársbyrjun Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barnabóka og er tilnefnd til Barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna. Veiða vind hefur notið mikilla vinsælda í heimalandi sínu og tónlist sem samin var við söguna hefur verið flutt þar, en einnig af Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða þar sem sigurvegarar úr Stóru upplestrarkeppninni lásu brot úr verðlaunabókunum og nemendur í Tónlistarskóla Reykjavíkur léku nokkur lög. Elsa Yeoman forseti borgarstjórnar, Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs héldu tölu og Margrét Kristín Blöndal formaður dómnefndar afhenti verðlaunin.
Við óskum Andra Snæ og Þórarni innilega til hamingju með verðlaunin!