Ari Jóhannsson

Lífsmörk Ara Jóhannessonar

Nú er komin út hjá Forlaginu bókin Lífsmörk eftir Ara Jóhannesson, lækni og verðlaunahöfund.

Aðalpersóna bókarinnar er Sölvi Oddsson, ungur svæfingalæknir í miklum metum á gjörgæsludeild Landspítalans, bæði meðal samstarfsfólks og sjúklinga. Sölvi helgar sig starfinu og er alltaf reiðubúinn að taka aukavaktir en fjarlægist eiginkonu og börn á merkjavæddu heimili í Garðabæ. Smám saman fer álagið að segja til sín og þegar mörkin milli þess að líkna og valda sársauka taka að dofna verður eitthvað undan að láta.

Ari Jóhannesson er sérfræðingur í lyflækningum og starfar á Landspítala. Hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir ljóðabókina Öskudagar.

Lífsmörk er fyrsta skáldsaga hans, einlæg og margslungin þroskasaga full af andstæðum; gálgahúmor og djúpri alvöru, sælu og sársauka, fjötrum og flugi himbrimans.

INNskráning

Nýskráning