Sagnfræði og bókmenntir

Tengsl sagnfræði og skáldskapar

Tengsl og mörk skáldskapar og sagnfræði verða rædd á morgun, miðvikudag, á Loft Hostel í Bankastræti kl. 20.

Útgáfufélagið Meðgönguljóð og sögubloggið Smjörfjall sögunnar standa fyrir pallborðsumræðum um sagnfræði og skáldskap en meðal þátttakenda eru þrír höfundar Forlagsins; Sjón, Sigrún Pálsdóttir og Hallgrímur Helgason; en þau eiga það öll sammerkt að hafa sótt innblástur í söguna í verkum sínum. Auk þeirra mun Sigrún Alba Sigurðardóttir, menningarfræðingur, taka þátt í umræðunum.

Þetta stórskemmtilega kvöld er runnið undan rifjum Kára Tulenius, rithöfundi, og Svövu Tómasdóttur, sagnfræðingi og ljóðskáldi en í fyrra héldu þau svipaðar pallborðumræður þar sem umræðu efnið var heimspeki og skáldskapur.

Dagskráin skiptist í tvennt. Í fyrri hlutanum verður umfjöllunarefnið Sagnfræðin í skáldskapnum en í seinni hlutanum Skáldskapurinn í sagnfræðinni. Þau Kári og Kristín Svava flytja hvort um sig stutt inngangserindi áður en umræður hefjast.

Hér má lesa meira um viðburðinn.

INNskráning

Nýskráning