Óttar Guðmundsson

Þarf ég að deyja ef ég vil ekki lifa?

Fyrir tveimur árum sendi Óttar Guðmundsson geðlæknir frá sér bókina Hetjur og hugarvíl – geðsjúkdómar og persónuleikaraskanir í Íslendingasögunum þar sem hann beitti fagþekkingu sinni á óvæntan hátt. Sú bók sló rækilega í gegn.

Nú sendir hann frá sér bókina Þarf ég að deyja ef ég vil ekki lifa? þar sem umfjöllunarefnið er sjálfsvíg en þetta er fyrsta bókin sem skrifuð er um sjálfsvíg á Íslandi. Óttar byggir bókina á eigin reynslu úr einkalífi og starfi sínu sem geðlæknir.

Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir á göngudeild Landspítala segir um bókina:

„Bók Óttars Guðmundssonar geðlæknis, „Þarf ég að deyja ef ég vil ekki lifa?“, er fyrsta íslenska bókin sem fjallar um sjálfsvíg og er sem slík tímamótaverk. Bókin er afar læsileg og rituð af hispursleysi þar sem ekkert er dregið undan. Fræðileg þekking Óttars á efninu er yfirgripsmikil og nákvæm.

Hann setur sjálfsvíg í sögulegt, heimspekilegt og félagslegt samhengi auk þess sem hann fjallar ítarlega um þá geðsjúkdóma sem helst tengjast sjálfsvígum. Þá lífgar Óttari upp á viðkvæmt og vandmeðfarið viðfangsefni með fjölmörgum dæmisögum og leitar þar fanga úr fortíð, nútíð og eigin reynslu í starfi og einkalífi. Skín þar víða í gegn eðlislægt skopskyn höfundar sem léttir lesandanum lundina þegar fjallað er um svo erfiðan málaflokk.

Bók Óttars ætti að vera skyldulesning fyrir alla þá sem starfs síns vegna koma að sjálfsvígum, sinna aðstandendum eða veita þeim meðferð sem lifa af alvarlegar sjálfsvígstilraunir.“

Hér má lesa viðtal við Óttar í helgar- D.V í sérstöku blaði tileinkuðu sjálfsvígum og í Kastljósi mánudag 5.mai, þar sem Jóhannes Kr. Kristjánsson ræðir við Óttar um bókina.

INNskráning

Nýskráning