halldor_laxness

Höll sumarlandsins, byggt á Heimsljósi

Nú um stundir dvelur hópur íslenskra listamanna, undir forystu Ragnars Kjartanssonar, í Vínarborg og hafa þau umbreytt listasafni í kvikmyndaver og vinna að því að taka upp mynd byggða á Heimsljósi Halldórs Laxness. Verkið nefnist Höll sumarlandsins og er framhald á verki sem Ragnar og Kjartan Sveinsson, tónlistarmaður, settu upp í Volksbühne í Berlín fyrr á þessu ári.

Heimsljós hefur lengi verið Ragnari hugleikið. „Heimsljós er verk sem fjallar um listamanninn og þrána eftir fegurðinni sem er eitthvað svo fallega vonlaus,“ segir Ragnar í viðtali við Ríkisútvarpið. Ragnar dvelur ásamt hópi listamanna í Thyssen Bornemisza samtímalistasafninu í Vínarborg í rúman mánuð á meðan tökur standa yfir. Safnið er opið almenningi á meðan og hægt er að fylgjast með ferlinu.

Heimsljós Halldórs Laxness sem verk Ragnars byggir á er ein þekktasta og ástsælasta skáldsaga Halldórs Laxness, stórvirki sem upphaflega kom út í fjórum bókum á árunum 1937-40. Sagan fjallar um lífshlaup Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, niðursetnings og alþýðuskálds sem aldrei á fullkomna samleið með öðru fólki. Ólafur er örsnauður, afskiptur og fyrirlitinn: leiksoppur og fótaþurrka þeirra sem einhvers mega sín. Ævi hans er óslitin þrautaganga en stefnan er ætíð skýr – til móts við fegurðina, þar sem engar sorgir búa. Heimsljós er margslungið átakaverk, áhrifaríkt, fyndið, róttækt og kraftmikið.

Til gamans má geta að Heimsljós var í 7. sæti á lista yfir kanónur sem Egill Helgason tók saman í Kiljunni. Á lista Kiljunnar voru fjögur öndvegisverk eftir Laxness í fyrstu 10 sætunum,

INNskráning

Nýskráning