Kroppurinn og prinsinn

Vika barnanna

Í vikunni gefum við út tvær dásamlegar barnabækur, önnur er endurprentun af algjörlega sígildri bók og hin er sprúðlandi ný og fersk!

Kroppurinn er kraftaverk er ætlað að kenna börnum um líkamsvirðingu. Það að líkaminn er listasmíð sem gerir allskonar frábæra hluti. Boðskapurinn er að þykja vænt um líkama sinn eins og hann er, hugsa vel um hann og bera virðingu fyrir líkömum annarra. Andri snær Magnason rithöfundur hafði þetta um bókina að segja;

„Falleg bók um brýnt málefni, kjörin til að kveikja mikilvægar umræður með börnum“

Höfundur bókarinnar er Sigrún Daníelsdóttir, bókin er ríkulega myndskreytt með myndum Bjarkar Bjarkadóttur

Litli prinsinn kom fyrst út árið 1943 og fór þá strax sigurför um heiminn. Nú er bókin talin meðal sígildra verka og er gefin út aftur og aftur á fjölmörgum þjóðtungum. Þessi einstæða saga á erindi við alla, unga sem gamla. Þar fléttast saman draumur og veruleiki, einfaldleiki og dul, létt gaman og djúp alvara sem vekur stöðugt til umhugsunar.

Höfundurinn, Antoine de Saint-Exupéry, fæddist í Lyon í Frakklandi árið 1900 og var kunnur flugmaður og rithöfundur. Flugið heillaði hann, þar sá hann möguleika til að færa saman fólk og þjóðir. Í huga hans var ekkert eins mikilvægt og vinátta og mannskilningur, eins og kemur fram í Litla prinsinum. Fallegar litmyndir sem prýða söguna gerði höfundurinn sjálfur. Það var Þórarinn Björnsson sem  íslenskaði.



INNskráning

Nýskráning