Menningarverðlaun DV

Tilnefningar til Menningarverðlauna DV

Tilnefningar til Menningarverðlauna DV voru kynntar í dag en þar eiga höfundar Forlagsins heilar fimm bækur!

Í flokki bókmennta hljóta Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir, Sjón, Þorsteinn frá Hamri og Sigrún Pálsdóttir tilnefningar og í flokki fræði eru það Vilhelm Anton Jónsson og Sigrún Pálsdóttur (sem eins og sjá má er tilnefnd í tveimur flokkum fyrir bók sína Sigrún og Friðgeir).

Samhliða tilnefningunum birti DV umsögn dómnefndar en hér að neðan má finna útdrætti úr þeim:

Um Stúlku með maga eftir Þórunni Erlu- og Valdimarsdóttur:
„Hér er komin heillandi saga sem leiftrar af frásagnargleði … Höfundur rekur ættir sínar út frá fjölbreyttum heimildum og skáldar allt um kring. Hér tekst lesandinn á loft og stekkur fyrirhafnarlítið á milli alda og landshluta.“

Um Mánastein eftir Sjón:
„Stíllinn er undurfagur og sagan sjálf er seiðandi, óhugnanleg og á köflum nístandi og óþægilega sannfærandi … Tvímælalaust sterkasta sögusmíðin á fjölbreyttum rithöfundarferli Sjón.“

Um Skessukatla eftir Þorstein frá Hamri:
„Þjóðskáldið frá Hamri er löngu fullnuma í þeirri list að segja margt í fáum orðum. Í Skessukötlum slípar hann steinvölu sína til fulls. Ljóðin eru í senn fáguð, meitluð, beitt og margræð.“

Um Sigrúnu og Friðgeir eftir Sigrúnu Pálsdóttur:
„Hér er á ferðinni er einstaklega vel skrifuð og áhugaverð saga sem hrífur lesandann með sér í hugstæða og harmræna för. Höfundur siglir vandrataða leið milli staðreynda og skáldskapar með viðkvæman og tregafullan efniviðinn.“

Um Vísindabók Villa eftir Vilhelm Anton Jónsson:
„Undur vísindanna lifna við. Vilhelm Anton Jónsson, Villi, opnar skilningarvit lesenda sinna með skoðun og skilgreiningu á til dæmis eðlis-, efna-, jarð- og stjörnufræði. Framsetningin er forvitnileg og leitin að töfrum vísindanna er höfð að leiðarljósi … Bókin hentar jafnt þeim sem þekkja vel inn á þennan botnlausa undraheim og þeim sem eru rétt að fóta sig í samfélagi manna.“

Við óskum þessum frábæru höfundum, og öðrum tilnefndum, innilega til hamingju með tilnefninguna til þessara merku verðlauna!

Hér má lesa grein DV um Menningarverðlaunin og umsagnir tilnefndra í öllum flokkum.

INNskráning

Nýskráning