Á dögunum gaf Forlagið út Marco-áhrifin, nýjustu bók Jussa Adlers-Olsen, en hún er fimmta bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim – ekki síst á Íslandi. Frá útgáfu hefur Marco-áhrifin raðað sér í efstu sæti metsölulista Eymundsson.
Af því tilefni, með þökk fyrir vel unnin störf og í þeirri von að Lögreglan þurfi sem minnst að kjást við eins harðsvífna glæpamenn og þá sem Jussi skrifar um – en njóti þess að lesa um þá – gefur Forlagið Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 10 eintök af Marco-áhrifunum.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, veitti eintökunum móttöku fyrir hönd Lögreglunnar á skrifstofu Forlagsins en eintökin koma til með að fara á setustofur Lögreglunnar starfsmönnum hennar til ánægju og yndisauka.
Marco-áhrifin hefur hlotið frábæra dóma um allan heim og nú síðast fjóra og hálfa stjörnu frá Björgvini G. Sigurðssyni á Pressan.is. Í dómi hans segir m.a.:
„Marco-áhrifin er vel skrifuð og ein af bestu norrænu spennubókunum um langt árabil … meistaraverk í flokki spennusagna … Skemmtilega flókin flétta í margslunginni skáldsögu af harmi og hamingjuleit utangarðfólks í allsnægtum velferðarsamfélagsins, með öllum sínum kostum og göllum. Marco-áhrifin þarft allt áhugafólk um góðar spennusögur að lesa. Norræna spennusagan er ekki söm á eftir innreið Adlers-Olsen í hennar heim. Marco-áhrifin bæta enn á bál þessara fanta góðu bóka.“