Korter á þýsku

Korter slær í gegn í Þýskalandi

Bók Sólveigar Jónsdóttur, Korter, kom út hjá þýska forlaginu Suhrkamp á dögunum í þýðingu Sabine Leskopf.

Bókin heitir á þýsku Ganze Tage im Café og skemmst er frá því að segja að á örfáum dögum hefur bókin selst í tæpum sjö þúsund eintökum, sem er glæsilegur árangur, ekki síst þegar um fyrstu bók höfundar er að ræða. Fjöldi dóma hefur þegar birst og af þeim að dæma er bókin yndi og eftirlæti þýskra gagnrýnenda.

Þess má einnig geta að kvikmyndaréttur Korters hefur þegar verið seldur The Icelandic Film Company.

INNskráning

Nýskráning