Þegar hefur verið tekið á móti 49 handritum í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin og ekki útilokað að eitthvað eigi eftir að berast með póstinum næstu daga. Þetta er metþátttaka ef minnið svíkur ekki stjórnarmenn í Verðlaunasjóði íslenskra barnabóka sem heldur utan um verðlaunin. Sjóðurinn var stofnaður í janúar 1985 í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar og kom fyrsta verðlaunabókin út vorið 1986. Verðlaunabækurnar eru orðnar 28 talsins og hefst nú maraþonlestur til að finna þá næstu í röðinni.
Hjá Forlaginu ríkir eðlilega mikil ánægja yfir þessari miklu þátttöku sem sýnir fyrst og fremst hversu mikil gróska er í barnabókaritun hér á landi. Dómnefnd stefnir á að ljúka störfum í maí en hulunni verður svipt af tuttugustu og níundu verðlaunabókinni og höfundi hennar í haust.