Ævar vísindamaður verður vikulegur gestur í sjónvarpinu frá og með næstu viku með skemmtilegan vísinda- og tilraunaþátt fyrir alla fjölskylduna sem unninn er í samstarfi við Sprengjugengið úr Háskólanum, Marel og Vísindavefinn. þar verður íslenskt hugvit haft að leiðarljósi, alvöru og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi og gerðar verða lífshættulegar tilraunir. Ævar hefur verið iðinn upp á síðkastið því í vor ætlar hann einnig að senda frá sér bók sem ungir og aldnir ferðalangar geta haft með sér út á hringveginn í sumar – jafnvel þeir sem ferðast bara í huganum.
Bókin ber titilinn Umhverfis Ísland í 30 tilraunum og geymir fjölmargar skemmtilegar – þarfar jafnt sem óþarfar – staðreyndir um landið okkar í bland við spennandi tilraunir sem hægt er að gera hvar og hvenær sem er. Ef þú ert ekki alveg klár á því hvar Kópasker er og manst ekki upp á hár hvaða Papa Papey er kennd við og langar líka að búa til þitt eigið eldgos ofan í plastflösku er bókin hans Ævars eitthvað fyrir þig!
Á vefsvæði sínu telur Ævar niður tímann fram að fyrsta þætti en þar má einnig finna sýnishorn úr þættinum, áhugaverðar staðreyndir og ýmislegt annað spennandi.