„Það er ekki ofsagt að í ritinu sé fjallað á einstaklega aðgengilegan og lipran hátt um ástir Íslendinga á tímabilinu 870-1300,” segir Þórunn Kristjánsdóttir í dómi í Morgunblaðinu um Ástarsögu Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson. „Úrvinnslan á efninu er vel heppnuð. Höfundi tekst að bera fræðilegt efni á borð fyrir lesendur á einfaldan og skemmtilegan hátt. Slíkt ætti ekki að koma á óvart enda Gunnar Karlsson sagnfræðingur þrautreyndur á sviði kennslubóka- og fræðibókaskrifa.“ Þórunn rekur efni bókarinnar á skilmerkilegan hátt og segir svo að lokum: „Eins og fram kemur í niðurstöðum Gunnars í bókarlok er erfitt að greina þróun í sögu ástarinnar hér á landi. Þrátt fyrir það nær hann að draga fram ólíka þræði og varpa upp heildstæðri mynd. Verkið er í senn virkilega vandað og skemmtilegt. Þeir sem hafa áhuga á sögu Íslendinga ættu ekki að láta það framhjá sér fara.“ Hún toppar svo umsögnina með fjórum stjörnum.
Minna má á að Ástarsaga íslendinga fékk líka fjögurra stjörnu dóm hjá Inga Frey Vilhjálmssyni á DV og Kolbrún Bergþórsdóttir hafði einkar falleg orð um hana í Kiljunni.