Auður og Eiríkur

Auður og Eiríkur tilnefnd

Auður Jónsdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl hafa verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandsráðs 2014, Auður fyrir bók sína Ósjálfrátt og Eiríkur fyrir Illsku. Sérstök dómnefnd Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs útnefnir sigurvegarann en tilkynnt verður um úrslitin við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi í október 2014.

Forlagið óskar Auði og Eiríki innilega til hamingju með tilnefningarnar sem staðfesta enn frekar hvílík snilld þessar bækur eru!

Keppinautar Eiríks Arnar og Auður eru eftirfarandi: Danir tilnefna smásagnasafnið Postkort til Annie eftir Idu Jessen og skáldsöguna Mine møder med De Danske Forfattere eftir Claus Beck Nielsen. Finnar tilnefna ljóðabókina Toivo eftir Henriikku Tavi og skáldsöguna Hägring 38 eftir Kjell Westö. Svíar tilnefna skáldsöguna Kairos eftir Andrzej Tichý og ljóðabókina Minnesburen eftir Evu Runefelt. Norðmenn tillnefna Bergeners eftir Tomas Espedal og skáldsöguna Camillas lange netter eftir Monu Høvring. Álendingar tilnefna Bygdebok eftir Johönnu Boholm. Grænlendingar tilnefna skáldsöguna Naleqqusseruttortut  eftir Juaaka Lyberth. Loks tilnefna Færeyingar ljóðabókina Planker eftir Tórodd Poulsen.

INNskráning

Nýskráning