Fyrir þá sem ekki vilja bíða jólanna, heldur einhenda sér strax í jólabækurnar þá bendum við á að margar bókanna eru fáanlegar á ýmsu „formi“. Til dæmis kom Skuggasund Arnaldar Indriðasonar út sem rafbók í dag, en hana er einnig að hlýða á í hljóðbók. Mánasteinn eftir Sjón er sömuleiðis fáanlegur innbundinn, rafrænn og sem hljóðbók. Skáldsögu Þórunnar Erlu- og Valdimarsdóttur, Stúlka með maga, er fáanleg í rafbókaformi sem og Tímakistu Andra Snæs, Glæpurinn eftir Árna Þórarinsson, Dísusaga Vigdísar Grímsdóttur og Sæmd Guðmundar Andra Thorssonar. Þá getur þú líka fengið Grimmd eftir Stefán Mána beint í græjuna þína. Taktu bara forskot á lestrarsælu jólanna, það er af nægu að taka!