Þegar Ómar Ragnarsson var drengur í sveit í Langadal í Húnavatnssýslu upp úr miðri síðustu öld kynntist hann nokkrum sérkennilegum konum sem höfðu djúp áhrif á hann. Þar á meðal var Margrét Sigurðardóttir, sem kölluð var Manga með svartan vanga og ýmsum verri nöfnum, förukona sem þótti ófrýnileg og gekk einatt eftir þjóðveginum miðjum með stóð af hundum og köttum í kringum sig og flautandi bílaröð á eftir. Árið 1993 gaf Ómar út bók um Möngu og seldist bókin sú upp með hraði og hefur ekki verið fáanleg fyrr en nú.
Í nýrri bók sem út kemur í vikunni er hennar magnaða saga sögð á ný, í aukinni og endurbættri útgáfu, því Ómar hefur á síðustu árum komist að fjölmörgu um bakgrunn Möngu og samferðafólk hennar.
Við fögnum Ómari og þessari frábæru bók í Bókabúð Máls og menningar á miðvikudaginn kl. 17. Verið velkomin!