Við vekjum athygli á gullfallegum bókapakka sem seldur er til styrktar Hollvinum Grensásdeildar. Bækurnar Ása og Erla og Vaknaðu, Sölvi eru hugljúfar sögur í bundnu máli handa börnum á öllum aldri. Edda Heiðrún Backman málaði vatnslitamyndir og Þórarinn Eldjárn ljóðskreytti. Með bókunum fylgja tvær vatnslitamyndir eftir Eddu Heiðrúnu.
Láttu gott af þér leiða.