Gagnrýnendur Kiljunnar voru yfir sig hrifnir af nýrri bók Vigdísar Grímsdóttur, Dísusögu, í gærkvöldi. Dísusaga er skálduð ævisaga Vigdísar en í henni lýsir hún ofbeldi sem hún varð fyrir í æsku og hvernig atvikið hafi klofið sig í tvennt, í Dísu og Gríms. Líf Vigdísar, og sér í lagi skáldaferill hennar, hefur litast af átökum kvennanna sem búa innra með henni. Dísusaga er því hálfpartin útskýring á fyrri verkum Vigdísar, eins og Egill Helgason sagði í þættinum: „Lykilverk á hennar ferli, og eykur manni skilning á öllu því sem hún var að gera á undan … bráðfyndin líka … stórmerkilegt hjá henni. Bók sem við mælum óhikað með.“ Soffía Auður Birgisdóttir tók undir með Agli og sagði: „Stórkostleg bók, bók sem fjallar á svo ekta hátt um tilfinningalíf höfunda.“
Þó efnið hljómi e.t.v. þungt er léttur tónn í verkinu og ýmsir sagt þetta vera aðgengilegasta verk Vigdísar. Sigurður Valgeirsson segir: „Rokna kaflar, stíllega í þessari bók … Ég komst við við lesturinn, ég hló … Hún tekst á við sjálfa sig, þetta er bók sem skiptir máli.“
Dísusaga er áhrifamikil bók sem unnendur íslenskra bókmennta mega ekki láta fram hjá sér fara.