Alla mína stelpuspilatíð hlaut fína dóma hjá Jóni Yngva Jóhannssyni í Fréttablaðinu gær. Þar segir: „Alla mína stelpuspilatíð er ævisaga „venjulegrar konu“, Sigríðar Kristínar Þorgrímsdóttur sem er að nálgast sextugt þegar hún sest niður og skrifar endurminningar sínar. Hún er hvorki fræg né alræmd og hefur ekki lifað neina stóratburði umfram flesta jafnaldra sína. Samt er líf hennar í frásögur færandi. Saga hennar er merkileg, bæði sem spegill á þá tíma sem hún hefur lifað og sem heiðarleg og opinská saga einstaklings.“
Í niðurstöðu sinni segir Jón Yngvi: „Áhugaverð ævisaga, uppfull af vangaveltum um samfélag og sögu sem oft hitta í mark.“
Alla mína stelpuspilatíð er forvitnileg og hjartahlý bók sem allir þeir sem hafa áhuga á fólkinu í kringum sig ættu að geta sökkt sér ofan í.