Góða fólk! Í tilefni af endurútgáfu hinnar rómuðu ljóðasprellsbókar, Grannmeti og átvextir, mun Ljótikór endurflytja dagskrá sína, „Grannmetis- og átvaxtaveisla Ljótakórs“ fimmtudaginn 31. október næstkomandi í Tjarnarbíói.
Öll tónlist í dagskránni er eftir Hauk Tómasson tónskáld og textinn eftir Þórarin úr fyrrnefndri bók, en Ljótikór leggur sig fram um að fara nýstárlegar leiðir í tónlistarflutningi. Dagskrá þessi var frumflutt vorið 2012 og hlaut þá frábærar viðtökur og dóma, Jónas Sen gaf tónleikunum fjórar stjörnur á og sagði þá skemmtun sem yrði lengi í minnum höfð.
Aðeins þessir einu tónleikar 31. október kl. 20! Sjáumst í Tjarnarbíói í sannkölluðu grannmetisstuði.