Ritþing um helgina

Ritþing verður haldið í menningarmiðstöðinni Gerðubergi um helgina til heiðurs Kristínu Steinsdóttur rithöfundi. Á ritþingum Gerðubergs er leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril íslenskra rithöfunda. Stjórnandi að þessu sinni verður Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og með honum sem spyrlar verða Katrín Jakobsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir. Lesin verða brot úr verkum Kristínar og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona syngur nokkur lög. Dagskráin er laugardaginn 12. október og hefst kl. 14, sjá nánar hér.

INNskráning

Nýskráning