Á internetinu geta allir orðið stjörnur. Verðum við kannski öll heimsfræg í 15 mínútur eftir allt saman? Halldór Armand Ásgeirsson er nýr höfundur sem skrifað hefur tvær kostulegar sögur sem hverfast um þetta fyrirbrigði nútímans. Bókin hans Vince Vaughn í skýjunum kemur út hjá Máli og menningu í dag en í ár fékk hann nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir verkið.