Eiríkur Örn Norðdahl

Hnefi eða vitstola orð hlýtur góðar viðtökur


Ný ljóðabók verðalaunaskáldsins Eiríks Arnars Norðdahl, Hnefi eða vitstola orð, hlýtur góða dóma í föstudagsútgáfu Fréttablaðsins. Gagnrýnandinn fer þar fögrum orðum um ágeng og harðneskjuleg ljóð Eiríks og gefur verkinu fjórar stjörnur. Í verkinu tekst höfundur á við tilfinningarnar sem vöknuðu þegar hann sat í útlöndum og fylgdist með Íslandi sökkva í hyldýpi kreppunnar og veltir á sama tíma fyrir sér stöðu ljóðsins í nútímanum en í dómnum segir:

„Eiríkur Örn vinnur vel fyrir rithöfundalaunum sínum; hann rífur upp gengi ljóðsins um leið og hann fylgist með krónunni verða að engu. Bráðskemmtileg ljóðabók.“

Þeir sem þekkja til Eiríks vita að hann liggur ekki á skoðunum sínum og á því er engin breyting í þeirri rússíbanareið sem Hnefa eða vitstola orð býður upp á.

173,97 ISK

Tekurðu skiptimiða?
Geturðu sett þetta á reikninginn minn?
Eru aurar líka krónur?
Getum við komist að samkomulagi?

Hægra brjóstið fyrir mjólkurlítra!
Konungsríkið fyrir Camel Filters!

(Ó, hví eru aurar krónur?)

INNskráning

Nýskráning