Í tilefni af ritþingi til heiðurs Kristínu Steinsdóttur 12. október nk. gengst menningarmiðstöðin Gerðuberg fyrir bókmenntanámskeiði um bók hennar Ljósu mánudaginn 30. september. Ljósa fékk frábærar móttökur lesenda og gagnrýnenda og fyrir hana hlaut Kristín menningarverðlaun DV árið 2010 og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, árið 2011. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Maríanna Clara Lúthersdóttir bókmenntafræðingur og leikkona auk þess sem Kristín mun líta við og spjalla við þátttakendur. Skráning stendur yfir og veitir Gerðuberg allar nánari upplýsingar.