Arnaldur um Erlend

Arnaldur Indriðason spjallaði við Kolbrúnu Bergþórsdóttur blaðamann Morgunblaðsins í tilefni af RBA-bókmenntaverðlaununum og þá bar örlög söguhetjunnar Erlendar Sveinssonar á góma. Kolbrún spurði hvort fleiri bækur kæmu út um Erlend, eða hvort hinn ástsæli lögreglumaður væri dáinn:

„Furðustrandir er andlega skyld Harðskafa en báðar sögurnar fjalla um dauðdaga af völdum kulda. Þar er kuldinn morðinginn. Það getur tekið langan tíma fyrir mann að deyja úr kulda. Annað veit ég ekki,“ svaraði Arnaldur, hæfilega óræður.

Viðtalið má lesa í heild sinni á síðu 2 í Morgunblaðinu í dag.

INNskráning

Nýskráning