Í kvöld kl. 20 verður fyrsta upplestrarkvöld Bókmenntahátíðar í Reykjavík sem í þetta eina sinn verður í Eldborgarsal Hörpu. Dagskráin er haldin í samvinnu við PEN-samtökin sem um þessar mundir halda heimsþing sitt í Reykjavík. Tvö íslensk skáld lesa úr verkum sínum, Þorsteinn frá Hamri sem nýlega sendi frá sér tuttugustu frumsömdu ljóðabók sína, Skessukatla, og Gerður Kristný sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir síðustu ljóðabók sína, Blóðhófni. Auk þeirra lesa James Fenton frá Bretlandi og Antonio Skármeta frá Chile. Tilkynnt um hver hlýtur New Voices Award og Tómas R. Einarsson, Ragnheiður Gröndal og Ómar Guðjónsson flytja tónlist.
Önnur upplestrarkvöld bókmenntahátíðar fara fram í Iðnó þar sem vaninn er að barist sé um hvert sæti. Í kvöld verður nóg pláss fyrir alla og óskandi að bókaþjóðin fylli salinn.