Villt þú vaxa og dafna í lífi og starfi, áorka meiru eða jafnvel bara læra að slaka á? Nýlega kom út fyrsta íslenska bókin um markþjálfun; Markþjálfun: Vilji, vit og vissa. Markþjálfun er aðferð sem styður fólk á öllum aldri við að finna tilgang sinn og lífshamingju, koma jafnvægi á lífið og ná meiri árangri í verkefnum sínum.
Í amstri dagsins gleymist stundum að stoppa, líta inn á við og einbeita sér að því að vera í núinu. Markþjálfun hjálpar þér að takast á við nýjar áskoranir, breytingar og að sjá tækifærin í nýrri og síbreytilegri hringiðu samfélagsins. Þó að markþjálfun snúist um að ná settum takmörum og fá sem mest út úr hverjum klukkutíma gerir hún það með að líta inn á við, hægja á og vinna markvisst að settum markmiðum.
Ef þú hefur áhuga á þróun og þroska sjálfs þíns, og annarra – eða mannkynsins alls, þá gætir þú haft bæði gagn og gaman af þessari bók.