Hugrökk efnistök

Það er ekki öllum gefið að skrifa fyrir ungt fólk – hvað þá um jafn viðkvæm málefni eins og þunglyndi og sjálfsvíg. Gagnrýnandi Bookbird, málgagns alþjóðlegu IBBY-samtakanna, hrósar Jónínu Leósdóttur í hástert í dómi sínum um bók hennar Upp á líf og dauða. Hún segir söguna beina sjónum lesenda að öllum hliðum unglingsáranna og með því að viðurkenna þunglyndi meðal ungmenna og fjalla um það sem ástand sem megi lækna og meðhöndla hjálpi höfundurinn til við að aflétta þöggun sem oft ríki um geðsjúkdóma.
Dómur Natalie M. Van Deusen bergmálar að vissu leiti önnur skrif um bókina, í fjögurra stjörnu umfjöllun um bókina í Morgunblaðinu skrifaði Anna Lilja Þórisdóttir meðal annars um það hugrekki sem nauðsynlegt sé að hafa til að skrifa um málefni eins og þunglyndi og sjálfsvígshugsanir.


INNskráning

Nýskráning