Allamalla

Gott fólk tekur vondar myndir!

Þekkir þú lélegan ljósmyndara? 
Áttu flotta myndavél en kannt ekkert á hana?
Langar þig að fegra fés og krumpur?

Þá er lausnin fundin því bókin Stafræn ljósmyndun er nú loksins fáanleg að nýju. Þar er á ferðinni hagnýt og ítarleg handbók um ljósmyndun og myndvinnslu fyrir byrjendur og lengra komna.

Í bókinni eru ríflega 1000 ljósmyndir og hagnýtar leiðbeiningar sem hjálpa þér að ná tökum á helstu ljósmyndaaðferðum og veita þér innblástur til að móta þinn eigin stíl.

Náðu tökum á tækninni og taktu betri myndir.

Fyrir gamansama má benda á þessa heimasíðu þar sem sjá má dæmi um arfaslakar myndir.

INNskráning

Nýskráning