Bernd Ogrodnik og Kristín María Ingimarsdóttir

Gæðagripir handa allri fjölskyldunni

Silja Björk Huldudóttir, gagnrýnandi Morgunblaðsins, fjallar lofsamlega um tvær nýjar barnabækur í blaði dagsins sem eiga það sameiginlegt að sækja í menningararfinn – þann íslenska og þann færeyska. Tónlistarævintýrinu Veiða vind gefur hún fjórar og hálfa stjörnu og segir höfundum hennar takast „að skapa spennandi og skemmtilegt tónlistarævintýri samhliða því sem þau vinna með skapandi hætti með færeyskan menningararf.“

Hún hrósar spennandi sögu Rakelar Helmsdal sem vinnur út frá kvæðinu um Ólaf riddararós og litríkum myndum Janusar á Húsagarði, og um geisladiskinn sem fylgir bókinni segir hún: „Bókinni fylgir geisladiskur þar sem Benedikt Erlingsson leikari les söguna meistaralega vel við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Færeyja undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar, en tónlistin er eftir færeyska tónskáldið Kára Bæk. Tónlistin þjónar sögunni vel og undirstrikar jafnt gleði- sem hættustundir, en tónskáldið vinnur sérlega skemmtilega með færeysk þjóðstef. … Óhætt er að segja að bókin og diskurinn séu miklir gæðagripir sem gleðja munu jafnt lesendur sem áheyrendur.“

Gilitrutt og hrafninn eftir Bernd Ogrodnik og Kristínu Maríu Ingimarsdóttur gefur Silja Björk fjórar stjörnur og hrósar bæði fyrir frjóa meðferð á sígildu söguefni og fallegar myndir: „Sérlega gaman er að skoða öll smáatriðin í leikmyndinni sem unnin er úr ull og birki, en margvísleg lög í leikmyndinni skapa nauðsynlega dýpt í myndunum.“

Silja bendir á hvernig Bernd vinnur með skapandi hætti með söguna um Gilitrutt og fléttar saman við hana öðru þjóðsagnaminni, þ.e. sögunni um hrafninn sem launar matargjafir mannfólksins. „Ánægjulegt er einnig að sjá að samskiptum bóndahjónanna, Jóns og Freyju, eru gerð ítarlegri skil í túlkun Bernds. Þannig verður væntumþykja aðalpersónanna tveggja hvorrar í garð annarrar mjög greinileg sem gefur sögunni hlýlegt yfirbragð. Boðskapur sögunnar kemst eftir sem áður mjög skýrt til skila, en hann kveður á um að leti og iðjuleysi borgi sig ekki, enda getur reynst afar dýrkeypt að stytta sér leið í verkefnum sínum og viðfangsefnum lífsins.“

Silja Aðalsteinsdóttir bjó íslenskan texta sögunnar um Gilitrutt og hrafninn til prentunar en bókin er einnig til í enskri útgáfu. Þórarinn Eldjárn þýddi Veiða vind úr færeysku. Upplagt er að nýta sumarið til að njóta þessara stjörnum prýddu gæðagripa með börnum á öllum aldri.

INNskráning

Nýskráning