Á föstudag kemur út æsispennandi saga, Áður en ég sofna, eftir hinn breska S.J. Watson. Höfundurinn sló rækilega í gegn með þessari mögnuðu frumraun sem unnið hefur til ýmissa verðlauna, verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og setið á metsölulistum austan hafs og vestan. Kvikmyndarétturinn var fljótlega seldur til Ridley Scott og verður myndin frumsýnd á næsta ári. Það eru stórstjörnurnar Nicole Kidman og Colin Firth sem fara með aðalhlutverkin. Bókin hlaut afar lofsamlega dóma hvar sem hún kom út og þrátt fyrir að bókin komi ekki formlega út fyrr en á föstudag hefur Kolbrún Bergþórsdóttir þegar fjallað um bókina í Morgunblaðinu þar sem hún segir hana vera bæði snjalla og hörkuspennandi og ráðleggur spennufíklum að láta bókina ekki framhjá sér fara.
Sagan segir frá Christine sem þarf á hverjum morgni að kynnast öllu upp á nýtt: Hún vaknar í ókunnugu húsi, við hlið ókunnugs manns, og þegar hún lítur í spegil mætir henni framandi sjón. Hún veit ekki hver hún er; hún man ekki neitt. Nætursvefninn rænir hana öllum minningum. Minnisleysið gerir hana berskjaldaða gagnvart misnotkun og lygum og smám saman verður ljóst að maðurinn sem vaknar með henni og útskýrir stöðuna dag eftir dag – sá sem hún treystir á – segir ekki allan sannleikann.
Þeir sem geta ómögulega beðið föstudagsins eiga þess kost að demba sér strax í lesturinn því bókin er þegar komin út á rafbókaformi.