Kristjana Friðbjörnsdóttir og Gunnar Helgason

Ferskir vindar blása í barnabókum Forlagsins

Í gær fengu þrír af höfundum Forlagsins Vorvindaviðurkenningu IBBY á Íslandi.

Gunnar Helgason hlaut viðurkenninguna fyrir víðtækt starf með börnum á sviðum leik-, söng- og ritlistar en einkum þó nýjustu bækurnar sínar, Víti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri sem dómnefndinni þóttu vera „skrifaðar af næmni og kímni og gleðja lesendahóp sem ekki á alltaf auðvelt með að finna lesefni við sitt hæfi.“

Kristjana Friðbjörsdóttir hlaut viðurkenninguna fyrir bækurnar sínar sex og segir í umsögn dómnefndar: „þrjár um spæjarann Fjóla Fífils og þrjár um hina óforbetranlegu Ólafíu Arndísi, sem segir á hreinskilinn og einlægan hátt frá ævintýrum hversdagsins. Sögurnar eru bráðfyndnar og skemmtilegar og hitta beint í mark hjá lesendum.“

Að lokum fékk Brigitta Sif Jónsdóttir Vorvindana fyrir fyrstu bók sína, Ólíver, sem kom samtímis út hjá Walker Books í Bretlandi og hér heima. „Birgitta skrifar söguna og teiknar hana um leið. Söguheimurinn er fjölbreyttur og lifandi og boðskapurinn hlýr og fallegur,“ segir í umsögn dómnefndar.

Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987 og eiga þær að vekja athygli á þeim fersku vindum sem blása í barnamenningunni hverju sinni.

Á myndinni eru Gunnar og Kristjana í sumarsólinni utan við Gunnarshús í Reykjavík en Birgitta Sif býr erlendis og gat því ekki verið viðstödd.

INNskráning

Nýskráning