Stefán Máni sendi nýverið frá sér bókina Úlfshjarta sem fengið hefur frábærar viðtökur, bæði hjá kaupendum og gagnrýnendum, og framleiðslufyrirtækið Filmus hefur þegar tryggt sér kvikmyndaréttinn á. Bókin er ekki síst ætluð unglingum sem hafa verið ívið of ungir fyrir þær harðsvíruðu spennubækur sem höfundurinn er þekktastur fyrir. En Stefán Máni hefur ekki snúið bakinu við lesendahópnum sínum og leggur nú lokahönd á glæpasögu þar sem lögreglumaðurinn Hörður Grímsson verður í aðalhlutverki.
Stefán Máni segist taka upp þráðinn þar sem Feigð endaði en hún kom út árið 2011. „Hörður snýr aftur til starfa eftir ársleyfi. Hann er búinn að ættleiða barn og hefur lent í ýmsum ævintýrum. Söguþráður bókarinnar byggir á sönnum atburði, barnsráni, sem var framið árið 2006 á Íslandi,“ sagði höfundurinn í samtali við Viðskiptablaðið.
Þegar blaðamaðurinn spyr Stefán Mána hvort hann sé farinn að huga að næstu bók þar á eftir svarar hann snaggaralega: „Eigum við ekki aðeins að róa okkur? Maður er alveg sveittur í þessu akkúrat núna, það kemur bara í ljós.“ Það verður þó að teljast ósennilegt að þessi afkastamikli höfundur muni sitja auðum höndum þegar spennusaga haustsins verður komin í prentun – spurningin er bara hvað hann tekur sér fyrir hendur næst.