Anna Lilja Þórisdóttir hrósar nýrri bók eftir Stefán Mána í hástert í Morgunblaðinu í dag og gefur henni fjórar stjörnur. Í umfjölluninni um Úlfshjarta segir meðal annars: „Stefán Máni, sem sumir vilja kalla Tarantino íslenskra bókmennta, er þekktur fyrir flest annað en að skrifa barn- eða unglingavænar bækur. Ef einhverjar bækur ætti að banna börnum þá væru það hugsanlega sumar bóka hans, en hér vendir hann kvæði sínu í kross og útkoman er þessi líka stórskemmtilega, ævintýralega og spennandi unglingabók.“
Bókin segir frá tveimur reykvískum unglingum, Alexander sem er hættur í menntaskóla og vinnur á kókbílnum, og Védísi sem er nýbyrjuð í MR. Að mati Önnu Lilju eru þau dregin þéttum dráttum, „krakkarnir flottir og trúverðugir, atburðarásin er hröð og töff og bókin öll hin skemmtilegasta. … Samband þeirra hefst líklega eins og mörg þúsund sambönd fólks á þessum aldri; hann býður henni í bíó. En það sem á eftir fylgir er ekkert mjög hefðbundið; íslenskur raunveruleiki kallast á við ævafornar þjóðsögur og ævintýri og aldagamlar goðsagnir spígspora um malbikið á götum Reykjavíkur eins og ekkert sé sjálfsagðara í slagtogi við illræmda glæpamenn.“ Í sama streng tók Kolbrún Bergþórsdóttir í umfjöllun um bókina í Kiljunni í gærkvöld: „Stefán hefur í flestum sínum bókum verið að skrifa um dýrið í manninum, villidýrið í manninum, illskuna og annað slíkt. Það er stefið í þessari bók. Það sem mér finnst hann gera óskaplega vel er að lýsa tveim unglingum, strák og stelpu, sem hafa í sér grimmd og sýna mikla skapgerðarbresti … Mér finnst þetta unga fólk mjög vel gert hjá honum.“
Anna Lilja endar fjögurra stjörnu dóm sinn á þessum orðum: „Bókarlok gefa von um framhald og vonandi er það rétt skilið.“