Dómnefnd Íslensku barnabókaverðlaunanna hefur rýnt vel í þau átján handrit sem bárust í samkeppnina að þessu sinni en þótti ekkert þeirra henta sem verðlaunasaga og því verða verðlaunin ekki veitt í ár. Höfundar geta sótt handrit sín á skrifstofu Forlagsins, Bræðraborgarstíg 7 í Reykjavík, næstu tvo mánuði en eftir það verður öllum ósóttum handritum fargað.
Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1986, að undanskildum árunum 1999 og 2005 þegar sama var upp á teningnum og nú. Næsti skilafrestur í samkeppnina verður í byrjun febrúar 2014 og eru allir þeir sem luma á handriti eða hugmynd að barnabók hvattir til að skrifa þá dagsetningu á bak við eyrað og nýta tímann vel.
Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi.