Bandaríska veftímaritið The Huffington Post birti í gær viðtal Edwards M. Weinman við Hallgrím Helgason í tilefni af því að skáldsaga hans Tíu ráð til að hætta að drepa fólk og fara að vaska upp var að koma út í Bandaríkjunum. Á ensku heitir sagan því laggóða nafni The Hitman’s Guide to Housecleaning.
Rithöfundar eru alltaf að drepa fólk, segir Hallgrímur í viðtalinu, „sem rithöfundur verður maður að vera andstyggilegur og grimmur. Nota pennann eins og byssu. Það fer ekki hjá því að stundum verða persónurnar sem maður skrifar um fyrir meiðslum.“ Þetta miskunnarleysi hjálpaði Hallgrími að skríða inn í heilabú morðingja og búa til sannfærandi mynd af persónu eins og Toxic, segir Weinman.
Hallgrímur fullyrðir að hann hafi ekkert dálæti á ofbeldi í bókum og bíómyndum, samt hafi hann haft æði gaman af að lýsa ofbeldisverkum Toxics. En á Íslandi og Norðurlöndunum yfirleitt er svo lítið um glæpi, bendir Weinman á, og Hallgrímur fellst á það. „En rithöfundar eru blóðþyrstir og þann þorsta verðum við að slökkva með sögum. Ef maður byggi í mafíulandi með sífelldu ofbeldi á götum úti þá býst ég við að maður væri bara í því að yrkja falleg ljóð. Lífið er alltaf að leita jafnvægis. … Og ég var að reyna að finna jafnvægi milli ýmissa hluta í þessari bók, fyndni og alvöru, manndrápa og samúðar. Hvernig það væri að vera útlendingur á Íslandi. Og hvernig það væri að vera að níða Ísland niður og elska það samt.“
Viðtalið allt má lesa hér: http://www.huffingtonpost.com/edward-m-weinman/the-hitmans-guide-book_b_2935521.html