Valgerður Halldórsdóttir

Valgerður félagsráðgjafi ársins

Valgerður Halldórsdóttir, höfundur bókarinnar Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl, var valin Félagsráðgjafi ársins 2013 af meðlimum Félagsráðgjafafélags Íslands á aðalfundi þess í fyrradag. Kom fram í rökstuðningi með valinu að það var ekki síst bókin hennar sem stuðlaði að valinu.

Í niðurstöðum dómnefndar segir: „Valgerður hefur á árinu gefið út vandaða bók um stjúptengsl, Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl. Hún hefur markerað svið sem sannarlega heyrir til félagsráðgjafar og því fagpólitískt mikilvægt að félagsráðgjafi setji hér „fánann á mánann“ með bókarútgáfu og markvissri kynningu á því efni. Valgerður hefur átt frumkvæði að því – í samstarfi við aðra – að stofna Félag stjúpfjölskyldna, opnað heimasíðu (www.stjuptengsl.is) um málefnið og átt þátt í að móta og kenna námskeið um stjúpfjölskyldur (og aðstoða við leiðsögn á ritgerðir um efnið) í félagsráðgjafarnámi HÍ. Þá hefur Valgerður átt drjúgan þátt í að efla fag- og landsdeildir innan FÍ, unnið ötult starf í þágu Félagsráðgjafafélags Íslands og komið að þróun Tímarits félagsráðgjafa í nánu samstarfi við ritstjórn sl. 4 ár.“

Við óskum Valgerði innilega til hamingju með árangurinn.


INNskráning

Nýskráning