Kristín Eiríksdóttir

Karma fyrir fugla frumsýnt

Kristín Eiríksdóttir vakti mikla og verðskuldaða athygli fyrir smásagnasafnið Doris deyr fyrir tveim árum og ekki síður fyrir skáldsöguna Hvítfeld í fyrra. Nú hefur Þjóðleikhúsið frumsýnt fyrsta leikverk hennar, Karma fyrir fugla, sem hún samdi ásamt Kari Ósk Grétudóttur.

Leikritið fjallar um mansal og í Fréttablaðinu hóf Arndís Þórarinsdóttir umsögn sína á þessum orðum: „„Maður verður alla helgina að jafna sig á þessu,“ var komið fram á varirnar á mér eftir frumsýninguna á Karma fyrir fugla … En um leið og hugsunin hafði runnið í gegnum hugann vonaði ég að hún væri misskilningur. Vonandi tekur miklu lengri tíma en eina helgi að jafna sig á þessari sýningu, vonandi eimir eftir af henni varanlega.“ Arndís var ánægð með leikinn og leikstjórnina sem var í höndum Kristínar Jóhannesdóttur: „Sviðsetningin er kraftmikil, grípandi og áleitin, með sterku myndmáli. … Þetta er ekkert þægileg sýning. Þeir sem vilja fara í leikhús til að hlæja, skemmta sér og gleyma ættu sennilega ekkert að eltast við hana. En það var engin tilviljun að allir frumsýningargestir Kassans risu á fætur við sýningarlok á föstudaginn. Það er svo magnað að fara í leikhús og finna þar eitthvað sem skiptir máli.“ Og niðurstaða Arndísar var: „Áleitin sýning þar sem ótal hliðar sama vanda eru skoðaðar, vel leikin og kraftmikil.“

Sigurður Valgeirsson er líka sáttur við sýninguna í Morgunblaðinu: „Styrkleiki þessarar sýningar er að mínu mati mikill kraftur og talsverður frumleiki. Leikmyndin er sérstök og henni er breytt á skemmtilegan hátt af leikendum. Áhorfandanum birtast einnig oft óvæntar, frumlegar og eftirminnilegar myndir.”

Silja Aðalsteinsdóttir er líka ánægð á tmm.is: „Margar senur í þessu skemmtilega og brýna verki verða minnisstæðar; æðisgenginn flótti Elsu um óhugnanlegan kynjaskóg (svið Önnu Rúnar Tryggvadóttur var ferlega flott), áhrifamikið söngatriði Elsu, fallegt fuglaatriðið með Herdísi Þorvaldsdóttur í hlutverki níræðrar búddanunnu og þó umfram allt stórfenglegur dans þeirra Elsu og Örvars þar sem ofbeldið tók smám saman yfir í meistaralegri stílfærslu. Öll var sýningin feiknavel leikin en sérstakt hrós fær Þórunn Arna sem hér sýnir ótvírætt að hún er listagóð leikkona sem getur hvað sem vera skal.“ Að lokum segir Silja: „Það má líka alveg hrósa Þjóðleikhúsinu fyrir að gera svona vel við ung leikskáld, tefla fram nokkrum af sínum sterkustu listamönnum til að lyfta þeim myndarlega upp.“

INNskráning

Nýskráning