Sigríður Víðis Jónsdóttir

Tíu ár frá innrásinni í Írak

Í þessum mánuði eru tíu ár frá því að Bandaríkjamenn, Bretar og bandamenn þeirra réðust inn í Írak og enn glíma heimamenn við afleiðingar þeirrar ringulreiðar sem þá skapaðist. Það er erfitt að ímynda sér hvað íbúar landsins hafa mátt þola undangengin ár en íslenskir lesendur fengu þó einstaka innsýn í aðstæður lítils hluta íbúa Bagdadborgar í bók Sigríðar Víðis Jónsdóttur Ríkisfang: Ekkert, sem hlaut fjölda verðlauna og viðurkenninga þegar hún kom út haustið 2011, meðal annars Viðurkenningu Hagþenkis og tilnefningu til bæði Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Bókin segir sögu nokkurra palestínskra kvenna sem höfðu alið allan sinn aldur í Írak, að mestu leyti við friðsamlegar aðstæður, en voru hraktar frá heimilum sínum í kjölfar innrásarinnar. Áður en þær komu til Akraness, þar sem þær settust að og dvelja enn, bjuggu þær við óbærilegar aðstæður í flóttamannabúðum úti í eyðimörkinni við landamærin að Sýrlandi. Þá ríkti friður í Sýrlandi og einhverjar kvennanna hugleiddu að leita hælis þar. Það er því biturt til þess að hugsa að margir þeirra sem flýja átökin í Sýrlandi um þessar mundir búa við áþekkar aðstæður og „okkar“ konur gerðu í Al-Walid-flóttamannabúðunum í Írak.

Í Ríkisfang: Ekkert er að finna gríðarlegan fróðleik um aðstæðurnar í Bagdad þegar árásin hófst og  lýsingu á flótta kvennanna frá borginni sem er á köflum nánast reyfarakennd. Að auki skýrir bókin aðstæður Palestínumanna í Mið-Austurlöndum sem dvelja í fjölda landa án ríkisfangs og eru því í hörmulegum aðstæðum þegar ófriður brýst út. Bókin naut mikilla vinsælda þegar hún kom út, jafnt meðal þeirra sem hafa mikla þekkingu á aðstæðum þessa heimshluta og hinna sem lítið hafa kynnt sér þær. Hún lifir líka góðu framhaldslífi því höfundurinn fer enn á milli ýmissa félagasamtaka til að kynna efni hennar og hún er kennd í einhverjum framhaldsskólum og fleiri en einni námsbraut við Háskóla Íslands.

Það er fengur að bók eins og Ríkisfang: Ekkert sem opnar augu okkar fyrir aðstæðum sem engin manneskja ætti nokkru sinni að kynnast af eigin raun og eykur samkennd okkar og víðsýni.

INNskráning

Nýskráning