Hús úr húsi

Seldist upp á fimm dögum!

Skáldsagan Hús úr húsi, eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, kom út hjá forlagsrisanum Gyldendal í Danmörku á dögunum, í þýðingu Áslaugar Th. Rögnvaldsdóttur. Það er skemmst frá því að segja að Danir eru vel með á nótunum þegar um bækur Kristínar Marju er að ræða því bókin seldist upp á fimm sólarhringum.

Bækur Kristínar Marju Baldursdóttur njóta fádæma vinsælda í Danmörku. Hús úr húsi kom út þar í landi 31. janúar síðastliðinn og seldist upp á fimm dögum. Önnur prentun er væntanleg á markað í vikunni.

Strax eftir útkomu bókarinnar tóku dómar að birtast, meðal annars í öllum helstu fjölmiðlunum og er auðséð hversu dáð Kristín Marja er þar í landi því bóka hennar er beðið af mikilli eftirvæntingu. Þannig segir gagnrýnandi Politiken, Mary Schack, bókina geysiskemmtilega, fyndna og hugmyndaríka þar sem velt sé upp spurningunni ‚Hvað er fagurt líf?‘ Kristín Marja er sögð hárbeittur höfundur og snjall, í gáskafullum lýsingum sínum á aðalpersónunni og hafi sýnilega skemmt sér dável við skriftirnar, ekki síst í trylltum lokaþætti bókarinnar. Katinka Bruhn hjá Weekendavisen segir: „Maður fer einfaldlega í frábært skap við lestur bókarinnar. Stíll Kristínar Marju er sprúðlandi af ýkjum og iðandi af hamslausu lífi svo vermir manni um hjartað.“ Jyllands-posten er á svipuðum nótum: „Hús úr húsi er feikilega fín lýsing á lífi ungrar konu þar sem hvorki gengur né rekur og hún hefur sjálf ekki hugmynd um hver hún er. … Það sem gerir bókina svo einstaka er ekki síst skýr tilfinning höfundar fyrir villuráfandi sálu aðalpersónunnar.“

Á kvennabloggsíðunni danske webchicks fær bókin einnig afar lofsamlega umsögn hjá Kamillu Lykke sem segist hafa orðið ólýsanlega hrifin við lesturinn. „Kristín Marja Baldursdóttir er dásamlegur höfundur og ég hlakka til að kynnast verkum hennar frekar.“

Hús úr húsi kom út hjá Máli og menningu 1997 og fjallar um uppreisn gegn hversdagsleikanum og hina endalausu leit að ást og lífshamingju. Kolfinna er nýflutt heim til móður sinnar eftir lánlausa sambúð og fær ekkert skárra að gera en að leysa barnshafandi vinkonu sína af við þrif hjá misjafnlega hreinlátu fólki í Þingholtunum. Það er óneitanlega ísmeygilegt starf að fara hús úr húsi og nostra við persónulega muni náungans enda vaknar húshjálpin smám saman til lífsins og dregst inn í stórfurðulega atburðarás. Þannig kynnist hún óperusöngkonu, fræðimanni og lögmanni, að ógleymdri hinni öldnu Listalín sem lumar á uppskrift að fögru lífi. Hús úr húsi er önnur í röðinni af skáldsögum Kristínar Marju Baldursdóttur og hefur eins og aðrar sögur hennar notið mikilla vinsælda lesenda og gagnrýnenda, bæði innanlands sem utan. Hafa meðal annars sérstakir aðdáendahópar tengdir bókum Kristínar um Karitas komið hingað til lands til að skoða sögusvið bókanna og ræða við höfundinn.

INNskráning

Nýskráning