Fréttir

Afburða sagnamaður

Elísabet Brekkan, leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins, gerði sér ferð í Borgarnes til að hlusta á Einar Kárason segja frá atburðum Sturlungaaldar. Þar bregður hann sér í gervi Sturlu Þórðarsonar sem einnig er aðalpersóna síðustu skáldsögu Einars, Skálds, sem var ein af vinsælustu og mest seldu skáldsögum síðasta árs.

Elísabet hrífst innilega af sagnalist Einars, gefur sýningunni fjórar stjörnur í Fréttablaðinu í dag og segir meðal annars: „Á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi er lífi svo sannarlega blásið í hinar gömlu hefðir frásagnargleðinnar. Einar Kárason rithöfundur heldur áhorfendum föngnum í meira en tvo klukkutíma og slær ekkert af. Hann leiðir okkur inn í Sturlungaöldina eins og hann hafi sjálfur verið þar meðal manna. … Hér er ekkert verið að möndla með neina búninga, lýsingu né nokkra effekta. Morðin og lýsingarnar á þeim stóðu algerlega ein og sér í loftinu í kjarnyrtri frásögn Einars.“

Elísabet finnst Einar rekja söguna af mikilli andagift: „Hann segir Sturlungu og í raun Íslandssöguna sjálfa með skýrum og ljósum hætti þannig að allir hafa gaman og gagn af og skilja það sem kannski reynist mörgum tyrfið stagl í lestri. Einar gæðir persónu Sturlu sem sögumanns holdi og blóði og persónuleika sem áheyrendum fellur við og hlusta á með athygli. Ekki sakar að Sturla „upplýsir“ um ýmislegt sem ekki var vitað áður, t.d. það að hann sé höfundur Grettissögu og Njálu, auk þeirra bóka sem alltaf hafa verið á afrekalista þessa stórbrotna höfundar.

Segja má að Einar sé með þessari stórfróðlegu og skemmtilegu sagnaskemmtan að endurvekja hina munnlegu sagnahefð, sem var undanfari og lifði samtímis skrifuðum bókmenntum að fornu. Það ber að þakka.“ Og hún mælir með sýningunni fyrir fólk allt frá tíu ára aldri.

INNskráning

Nýskráning