Íslenskir aðdáendur danska rithöfundarins Hanne-Vibeke Holst munu fagna því að fá nýjustu skáldsögu hennar, Undskyldningen, á sínu móðurmáli. Í þýðingu Halldóru Jónsdóttur heitir hún Iðrun. Þetta er Danmerkurkróníka sem nær yfir sjötíu ár og segir sögu fjögurra kynslóða Tholstrup-ættarinnar, dramatíska sögu sem einkennist af einlægri ást, ástríðum og metnaði en líka blekkingum og lygum sem eitra líf fjölskyldunnar.
Sagan hlaut góðar undirtektir í heimalandinu, meðal annars sagði Björn Bredal í Politiken: „Þetta er ótrúlega vel undirbyggð og áhrifamikil ættar- og samtímasaga, þrungin drama, spennu og klókum athugunum á því sem mannanna börn gera hvert öðru. Hér er nóg af hrolli og skemmtun en líka íhugun um sálfræði og pólitík – henni liggur ýmislegt á hjarta.“ Hann gaf bókinni fjögur hjörtu að hætti blaðsins. Bókin fékk fjórar stjörnur frá Frank Sebastian Hansen í Ekstra-Bladet sem sagði m.a.: „Hanne-Vibeke Holst skrifar skemmtilega og hrífur mann með sér. Ættarsagan endurspeglar bút úr sögu Danmerkur en kaflarnir frá París, Berlín og Moskvu eru líka inspírerandi súrefnisgjafi.“ Og Birte Weiss sagði í Weekendavisen: „Hanne-Vibeke Holst málar með breiðum pensli mynd af kraftmikilli prestsfjölskyldu sem vill vel en þegir yfir óþægilegum sannleika um veikleika holdsins. Sagan er vel og örugglega sett saman … og í bónus fær maður það sem höfundurinn kann best: vel skrifaðar samfélagslýsingar.“
Hanne-Vibeke Holst en meðal þekktustu rithöfunda Dana. Hún hóf ferilinn tvítug með vinsælum unglingabókum en fylgdi unglingabókarhetjunni Louise til fullorðinsára og skrifar síðan fyrir fullorðna lesendur. Margir hér kannast við bókaflokkinn um fréttamanninn Therese Skårup, Thereses tilstand (1992), Det virkelige liv (1994) og En lykkelig kvinde (1998), sem varð gríðarlega vinsæll. Næsti þríleikur hennar vakti jafvel enn meiri athygli, hann hófst með Kronprinsessen (2002, á íslensku 2005) og seinni bindin eru Kongemordet (2005) og Dronningeofret (2008) sem því miður hafa ekki komið út á íslensku. Hanne-Vibeke hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir þessar bækur, m.a. Søren Gyldendal verðlaunin (2003), Edvard Pedersens Biblioteksfonds verðlaunin (2008), De gyldne Laurbær (2008) og Læsernes Bogpris (2009).