Hinn ástsæli rithöfundur Einar Kárason kemur víða við þessa dagana. Eins og fram hefur komið á vefsíðu Forlagsins frumsýnir hann annaðkvöld, 12. janúar, einleik í Landnámssetrinu í Borgarnesi um Sturlu Þórðarson. Á næstunni hefst líka námskeið hans um Njálu og tilurð hennar hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og í kvöld, 11. janúar, frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi leikritið Nanna systir eftir Einar og Kjartan Ragnarsson. Þetta er gamanleikur sem á mikið erindi við samfélagið í dag, að mati leikstjórans, Rúnars Guðbrandssonar.
Einar lauk á síðasta ári við rómaðan þríleik sinn um atburði Sturlungaaldar með sögunni Skáld þar sem Sturla Þórðarson sagnaritari, bróðursonur Snorra Sturlusonar, er í aðalhlutverki. Það má því segja að hann hafi verið á kafi í þessum blóðuga kafla Íslandssögunnar í meira en áratug því fyrsta bókin í þríleiknum, Óvinafagnaður, kom út árið 2001. Og Einar er greinilega ekki kominn upp úr honum enn.