Andri Snær

LoveStar tilnefnd í Bandaríkjunum

Skáldsagan LoveStar eftir Andra Snæ Magnason hefur verið tilnefnd til bandarísku Phillip K. Dick verðlaunanna sem eru veitt árlega og eru ein aðalverðlaunin þar í landi fyrir vísindaskáldsögur. LoveStar kom út á ensku í fyrra hjá Seven Stories Press. Hún er ein af sjö tilnefndum skáldsögum að þessu sinni og verða úrslitin tilkynnt 29. mars næstkomandi í Washington.

Sagan kom fyrst út hjá Máli og menningu 2002 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hún hlaut bæði Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið – markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið. En tíminn er naumur …

Bókin er til hjá Forlaginu bæði innbundin og í kilju.

INNskráning

Nýskráning