Aðdáendur Kafteins Ofurbrókar vörpuðu öndinni léttar síðastliðið haust þegar ljóst var að bið þeirra var á enda – eftir sex ára hlé var loksins komið framhald þessara geysivinsælu bóka um Harald, Georg og Kaftein Ofurbrók og baráttu þeirra við verstu illmenni heims og bæjarins hrekkjóttustu hrekkjusvín. Bókin heitir Kafteinn Ofurbrók og tiktúrurnar í Tappa Teygjubrók og var ákaflega vel tekið á Íslandi eins og í öðrum hornum heimsins.
Þrátt fyrir langa þögn var þó alls ekki tíðindalaust af Ofurbrókinni því fyrir nokkru varð Dreamworks Animations – sem á heiðurinn af snilldarverkum á borð við Madagascar-röðina, How to train your Dragon, að ógleymdum myndunum um hinn sígræna Shrek ? hlutskarpast í kapphlaupi um réttinn til að kvikmynda Ofurbrókar-ritröðina.
Ekki hefur enn verið tilkynnt um frumsýningardag myndarinnar og raunar er flest á huldu um þetta verkefni enn sem komið er. En sitthvað er þó skvaldrað. Ofurbrókin mun samkvæmt þessum orðrómi lifna á tjaldinu í tölvuteiknaðri þrívídd. Óstaðfestar fregnir herma að Hollywood-leikarinn John C. Reilly muni ljá Kafteininum rödd en Diedrich Bader (sem er m.a. þekkt rödd úr Madagascar-myndunum), mæli fyrir munn þeirra Tappa Teygjubrókar og Pésa Prumpubrókar en tónlistarkonan Katy Perry (rödd Strympu í Strumpamyndunum) fyrir óvættina Brjálaða brókarskassið. Þá eru þeir Jay Barughel og Andy Richter, sem t.d. hafa ljáð teiknimyndapersónum í How to train your Dragon og Madagascar raddir, sagðir eiga að tala fyrir Georg og Harald.
Dav Pilkey er með sitthvað á prjónunum þessa dagana og stefnt er að útgáfu tíunda skáldverksins um Kaftein Ofurbrók í íslenskum búningi á þessu ári. Vinir Ofurbrókarinnar munu því hafa nóg að lesa á meðan þeir bíða eftir að komast í bíó!