Hinn góðkunni gagnrýnandi Kiljunnar, Kolbrún Bergþórsdóttir, velur bestu bækurnar frá nýliðnu ári á bókaopnu sinni í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um síðustu helgi. Þar eru margar Forlagsbækur á blaði.
Meðal tíu bestu íslensku bókanna telur hún Strandir eftir Gerði Kristnýju („besta ljóðabók ársins“), Ósjálfrátt eftir Auði Jónsdóttur („vel skrifuð og skemmtileg aflestrar“), Sjóræningjann eftir Jón Gnarr („vel skrifuð og mjög áhrifamikil“), Íslenska kónga Einars Más Guðmundssonar (fjörug og vel stíluð), textasafn Megasar (textar „sem eru fullir frumleika, djörfungar og mátulegrar ósvífni“), Húsið eftir Stefán Mána („spennusaga ársins“) og Appelsínur frá Abkasíu eftir Jón Ólafsson („sönn og áhrifamikil saga“).
Meðal tíu bestu þýddu bókanna að mati Kolbrúnar eru Emma eftir Jane Austen („ómissandi erlend klassík“), Kortið og landið eftir Michel Houellebecq („kröftug verðlaunaskáldsaga“), Flöskuskeyti frá P eftir Jussi Adler-Olsen („spennubækur verða ekki miklu betri“), Herbergi eftir Emmu Donoghue („sérstök verðlaunabók“) og Jesúsa eftir Elenu Poniatowsku (“eftirminnileg kvenhetja”).