Sú nýjung er í boði í netverslun Forlagsins að kaupa gjafabréf fyrir rafbók. Þannig geta allir verið rafrænir og nútímalegir í jólagjafakaupunum – og gefið úrvals bókmenntir í leiðinni.
Þetta er einfalt! Þú velur rafbók, smellir þar á hnappinn kaupa gjafabréf og gengur frá greiðslunni. Svo prentar þú gjafabréfið út eða sendir það á þann heppna sem á að fá gjöfina. Hér eru nánari leiðbeiningar.
Úrval íslenskra rafbóka er alltaf að aukast og margar af jólabókunum eru komnar út sem rafbók. Kíktu á úrvalið hér.