Svavar Gestsson

Svavar kemur skemmtilega á óvart!

Sjálfsævisaga Svavars Gestssonar, Hreint út sagt, fær fjögurra stjörnu dóm í Fréttablaðinu. Björn Þór Sigbjörnsson sem ritar dóminn segir að það komi í ljós að Svavar sé stórskemmtilegur maður en í minni hans frá því hann var unglingur var hann leiðinlegur, brúnaþungur og sítautandi.

En gagnrýnandinn fær nýja sýn á manninn í bókinni, þar sem hann segir skemmtilega frá viðburðaríkri starfsævi, bernsku sinni og brauðstriti foreldra sinna. Niðurstaða dómsins er eftirfarandi: „Vel skrifuð bók eftir stjórnmálamann sem lifað hefur tímanna tvenna en eftirminnilegastar eru frásagnir úr æsku höfundar.“

INNskráning

Nýskráning